Húsnæðisfélagið Búmenn hfs - Forsíða ForsíðaSpurningar og svörEfnisyfirlitHafðu samband

Klettháls 1 - 110 Reykjavík - Sími 552- 5644

[ Forsíða ] Efnisyfirlit ] Lausar íbúðir ]
Um Búmenn ] Fréttir ] Íbúðir Búmanna ] Skráning í Búmenn ] Hafðu samband ] Spurningar og svör ] Skjöl og útgefið efni ]

Velkominn á vefsíðu Búmanna

Húsnæðissamvinnufélagið Búmenn er góður kostur í húsnæðismálum sem byggir á samfélagslegum grunni.

Skrifstofa Búmanna:  

Skrifstofa Búmanna er staðsett á Klettháls 1, 110 Reykjavík. Síminn er 552 5644  og Faxnúmer 552 5944. Skrifstofan er opin frá kl. 09 – 15 alla virka daga.

___________________________________________________________________________________________

Búmenn auglýsa nýjar íbúðir við Stórakrika í Mosfellsbæ.

Til sölu er búseturéttur í íbúðum við Stórakrika 2 í Mosfellsbæ. Íbúðirnar eru í þriggja hæða glæsilegu fjölbýlishúsi. Engin aldursmörk verða í þessu húsi. Um er að ræða 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir. Birt stærð íbúða er frá um 109 fm. Íbúðunum fylgja stæði í bílakjallara undir húsinu. Í húsinu eru 24 íbúðir, fjórir stigagangar og lyftur. Húsið er einangrað að utan og klætt með áli. Íbúðirnar eru til afhendingar fljótlega.

___________________________________________________________________________________________

Getum boðið upp á íbúðir til leigu í nágrenni Reykjavíkur.

________________________________________________________________________________________________________

  Nú eru 540 íbúðir komnar í notkun !!

Búmenn:

Húsnæðisfélagið Búmenn hsf. var stofnað með það að markmiði að byggja og reka búseturéttaríbúðir fyrir félagsmenn sína. Félagssvæðið nær til landsins alls og hefur félagið lokið byggingum íbúða í 13 sveitarfélögum víðsvegar um land. Félagið er opið öllum, bæði einstaklingum og samtökum. Sérstakt félagsnúmer veitir félagsmanni, sem náð hefur 50 ára aldri, rétt til kaupa á búmannaíbúð án tillits til núverandi búsetu. Búmenn leggja áherslu á vandaðar fullbúnar íbúðir á hagkvæmu verði. Búseturéttur og mánaðargjöld eru á kostnaðarverði.  Lögð er áhersla á gott aðgengi þannig að fólk geti búið í íbúðunum eins lengi og kostur er. Lögð er áhersla á hentugt skipulag í nálægð við þjónustu. Þar sem Búmenn sameinast um búsetu skapast rólegt umhverfi.

Kynningarmyndband um Smyrlaheiði, Hveragerði:

Íbúðir Búmanna:

Nú hafa Búmenn tekið 540 íbúðir í notkun í 13 sveitarfélögum.

Akranes (45) Akureyri (42)  Bessastaðarhreppi (18)  Garði í Gerðahreppi (44)  Grindavík (30)  Hveragerði (42) Höfn í Hornafirði (11)  Kirkjubæjarklaustri (4)  Kópavogi (39)  Reykjavík (179) Reykjanesbæ (41)  Sandgerði (17)  Vogum (29)

Aðalfundur Búmanna júní 2010:

Á aðalfundi Búmanna sem haldinn var 9. júní 2010 á Grand Hótel Reykjavík var Guðrún Jónsdóttir, arkitekt endurkjörin formaður félagsins. Steinunn Finnbogadóttir, varaformaður gaf kost á sér áfram og Ásgeir Hjálmarsson sem var varamaður í stjórn gaf kost á sér í stað Steinars Júlíusson sem ekki gaf kost á sér í aðalstjórn Búmanna. Steinunn og Ásgeir voru kjörin til tveggja ára.  Fyrir í aðalstjórn voru Sigurveig Sigurðardóttir og Úlfur Sigurmundsson sem kosin voru til tveggja ára árið 2009. Varamenn voru kosin Eyrún Eiríksdóttir, Helgi Baldursson og Þorsteinn Ragnarsson.

Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár er undir flipanum "fréttir" ásamt skýrslu viðhaldsráðs Búmanna og breytingu á samþykktum félagsins.

____________________________________________________________________________

Febrúar  2010

Breytilegir vextir leiguíbúðalána  lækka úr  5,4% í 4,9%

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,5%

_____________________________________________________________________________

Október  2009:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,55%

_____________________________________________________________________________

Júní  2009:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,6%

_____________________________________________________________________________

Aðalfundur Búmanna júní 2009:

Aðalfundur Búmanna var haldinn 10. júní 2009 í húsakynnum Búmanna að Kletthálsi 1 var Guðrún Jónsdóttir, arkitekt endurkjörin formaður félagsins. Sigurveig Sigurðardóttir og Úlfur Sigurmundsson gáfu kost á sér áfram og voru endurkjörin til tveggja ára.  Fyrir í aðalstjórn voru  Steinunn Finnbogadóttir, varaformaður og Steinar Júlíusson  sem kosin voru til tveggja ára árið 2008. Varamenn voru kosin Ásgeir Hjálmarsson, Eyrún Eiríksdóttir og Helgi Baldursson.

_______________________________________________________________________________

Maí  2009:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,7%

___________________________________________________________________________

Janúar  2009:

Breytilegir vextir leiguíbúðalána  hækka úr 5,25% í 5,4%

_____________________________________________________________________________

Ágúst  2008:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,9%

____________________________________________________________________________

Aðalfundur Búmanna júní 2008:

Aðalfundur Búmanna var haldinn 11. júní 2008 á Grand Hótel Reykjavík. Guðrún Jónsdóttir, arkitekt var endurkjörin formaður félagsins. Steinunn Finnbogadóttir, varaformaður og Steinar Júlíusson  gáfu kost á sér áfram og voru endurkjörin til tveggja ára.  Fyrir í aðalstjórn voru  Sigurveig Sigurðardóttir og Úlfur Sigurmundsson  sem kosin voru til tveggja ára árið 2007. Varamenn voru kosin Ásgeir Hjálmarsson, Eyrún Eiríksdóttir og Helgi Baldursson.

_____________________________________________________________________________

Apríl  2008:

Fastir vextir leiguíbúðalána 5,2%

____________________________________________________________________________

Janúar  2008:

Breytilegir vextir leiguíbúðalána  hækka úr 4,95 í 5,25%

_____________________________________________________________________________

Desember  2007:

Fastir vextir leiguíbúðalána 5,5%

______________________________________________________________________________

Nóvember  2007:

Fastir vextir leiguíbúðalána 5,3%

______________________________________________________________________________

Ágúst  2007:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,85%

______________________________________________________________________________

Júlí  2007:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,8%

______________________________________________________________________________

Júní  2007:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,7%

________________________________________________________________________________

Apríl  2007:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,65%

_________________________________________________________________________________

Mars  2007:

Fastir vextir leiguíbúðalána 4,75%

_________________________________________________________________________________

Janúar  2007:

Breytilegir vextir leiguíbúðalána 4,95%

Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur ákvarðað að breytilegir vextir leiguíbúðalána verði 4,95% frá áramótum. Öll leiguíbúðalán í flokki almennra leiguíbúðalána með breytilegum vöxtum munu bera þessa vexti, hvort sem um er að ræða áður tekin lán eða lán sem tekin verða á næstunni. Íbúðir Búmanna sem teknar voru í notkun fyrir desember 2004. bera breytilega vexti sem hafa verið 4,5% á árinu 2005 og 2006.

Í upphafi árs 2005 gafst Búmönnum fyrst kostur á að taka lán hjá Íbúðalánasjóði með föstum vöxtum. Félagið hefur síðan þá eingöngu tekið lán með föstum vöxtum sem voru í byrjun 3,9% en hafa hækkað í nokkrum þrepum og eru nú 4,7%.


Júlí 2006:

Íbúðalánasjóður hækkar vexti á nýjum lánum sem bera fasta vexti. Í júlí 2006 hækkaði Íbúðalánasjóðu vexti úr 4.6% í 4.7%.

 

Aðalfundur Búmanna júní 2007:

Aðalfundur Búmanna var haldinn 14. júní 2007 á Grand Hótel Reykjavík. Guðrún Jónsdóttir, arkitekt var endurkjörin formaður félagsins. Sigurveig Sigurðardóttir og Úlfur Sigurmundsson gáfu kost á sér áfram og voru endurkjörin til tveggja ára.  Fyrir í aðalstjórn voru  Steinunn Finnbogadóttir, varaformaður og Steinar Júlíusson  sem kosin voru til tveggja ára árið 2006. Varamenn voru kosin Ásgeir Hjálmarsson, Eyrún Eiríksdóttir og Helgi Baldursson.
_________________________________________________________________________________________

Apríl 2006:

Íbúðalánasjóður hækkar vexti á nýjum lánum sem bera fasta vexti. Í apríl 2006 hækkaði Íbúðalánasjóðu vexti úr 4.45% í 4.6%.


Janúar 2006:

Íbúðalánasjóður. Breytilegir vextir á eldri lánum Búmanna verða áfram 4.5% eins og þeir hafa verið á árinu 2005.


Desember 2005:

Íbúðalánasjóður hækkar vexti á nýjum lánum sem bera fasta vexti. Í desember 2005 hækkaði Íbúðalánasjóðu vexti úr 4.35% í 4.45%.


Nóvember 2005:

Íbúðalánasjóður hækkar vexti á nýjum lánum sem bera fasta vexti. Í lok nóvember 2005 hækkaði Íbúðalánasjóðu vexti úr 3.9% í 4.35%. Hér er um að ræða fasta vexti til 50 ára.


Janúar 2005:

Eldri lán. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur ákveðið vexti almennra leiguíbúðalána með breytilegum vöxtum vegna ársins 2005. Vextir af lánum lækkuðu úr 4.9 í 4.5 %.

Ný lán. íbúðalánasjóður hefur á grundvelli nýlegra breytinga á lögum um húsnæðismál hleypt af stokkunum nýjum flokki lána til leiguíbúða vegna ársins 2005 með föstum vöxtum. Vextir slíkra lána verða þeir sömu og vextir almennra íbúðalána Íbúðalánasjóðs, nú 4.15% og 3.90% ef Búmenn afsala sér rétti til uppgreiðslu á kostnaðar.

Skráning í félagið og fréttabréf:

Hér getur þú skráð þig í félagsskap Búmanna með því að fylla út eftirfarandi skráningarform >>> Skráning <<<

Þú getur sótt nýjasta fréttabréf Búmanna með því að smella hér

(Setja síðu Búmanna í bókarmerkið þitt)

 Hit Counter