Húsnæðisfélagið Búmenn hfs - Forsíða ForsíðaSpurningar og svörEfnisyfirlitHafðu samband

Klettháls 1 - 110 Reykjavík - Sími 552- 5644

Forsíða ]
Fréttir ] [ Um Búmenn ] Íbúðir Búmanna ] Skráning í Búmenn ] Hafðu samband ] Spurningar og svör ] Skjöl og útgefið efni ]

Stutt samantekt um Búmennn

Félagsmenn eru eigendur félagsins. Félagsmenn kaupa svokallaðan búseturétt og greiða síðan rekstur íbúðanna á kostnaðarverði. Töluverður greinarmunur er gerður á leigjanda og búseturétthafa af hálfu stjórnvalda þar sem búseturétthafinn er frekar eins og eigandi. Búseturétthafar fá greiddar vaxtabætur en leigendur fá húsaleigubætur. Fyrirmynd Búmanna er ættuð frá norðurlöndunum einkum Svíþjóð og Noregi. Í Noregi er talið að um 40% alls íbúðarhúsnæðis sé í svona búseturéttarformi.  Tilgangur Búmanna er að láta byggja hentugt gott húsnæði fyrir félagsmenn sína og hafa umsjá með rekstri þeirra. Með magnkaupum nær félagið verði íbúðanna töluvert niður sem skilar sér beint til notendanna m.a. í formi lægri lána. Félagið er ekki rekið í hagnaðarskyni og eru mánðargjöld íbúðanna því í raun rekstarrkostnaður þeirra. Það má því segja að þeir sem búa í íbúðum Búmanna séu að greiða töluvert lægra mánðaragjald en ef viðkomandi hefði sjálfur farið á íbúðarmarkað til að kaupa sína íbúð. Það er nokkuð ljóst að viðkomandi hefði ekki fundið nákvæmlega sambærilega íbúð þar sem Búmenn láta framleiða íbúðirnar sérstaklega fyrir sig, en fara ekki á markað til að kaupa tilbúnar íbúðir. Að auki eru íbúðir Búmanna ávallt fullbúnar. Ef viðkomandi hefði farið sjálfur á markað til að kaupa íbúð þá hefði íbúðin verði dýrari og ofan á verðið hefði lagst ýmis kostnaður sem fólk vill gleyma eins og kaup- og sölukostnaður, stimpilgjöld o.fl. Að auki leggja Búmenn mikið upp úr því að öll aðgengismál séu í lagi og síðan eru íbúðirnar af ákveðnum stærðum sem ekki finnast í miklum mæli á fasteignamarkaði. Nefna má að nokkuð vinsæl stærð íbúða er um 95 fm íbúð í rað- eða parhúsi ásamt bílskúr eða bílageymslu. Yfirleitt eru íbúðir í sérbýli á frjálsum markaði mun stærri í fermetrum. Lán Búmanna eru tekin til 50 ára sem gerir það að verkum að mánaðargjöldin verða lægri en ella.

Helstu staðreyndir um uppbyggingu Búmanna

Húsnæðissamvinnufélagið Búmenn, skammstafað Búmenn hsf.

  • Félagið er valkostur í húsnæðismálum þeirra sem eru 50 ára og eldri. Félagsmenn eru um 2200 talsins og er félagsgjaldið kr. 2000 á ári. Félagið byggir á svokölluðu búseturéttarformi. Búmenn hsf. standa sem eigendur íbúðanna en félagsmenn kaupa svokallaðan búseturétt sem yfirleitt liggur á bilinu 10% til 30% af kostnaðarverði íbúða og öðlast þannig rétt mjög sambærilegan eins og eigandi íbúðar. Við kaup á búseturétti er gerður svokallaður búsetusamningur sem þinglýstur er sem kvöð á viðkomandi íbúð.

  • Félagið sér um öll fjárhagsmál varðandi lántöku og er lán tekin hjá Íbúðalánasjóði til 50 ára. Þannig er tryggt að afborganir lána verða lægri en ella. Vextir lána fylgja hins vegar ákvörðun stjórnar Íbúðalánasjóðs á hverjum tíma.

  • Tilgangur félagsins er að láta byggja hentugar íbúðir fyrir félagsmenn og halda utan um rekstur íbúðanna. Félagið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Af mánaðargjöldunum renna kr. 2000 til félagsins og önnur gjöld eru til þess að greiða kostnað af rekstri þeirra.

  • Á undaförnum árum hefur stjórn Búmanna unnið markvist að því að útvíkka starfsemi félagsins á sviði þjónustu við eldri félagsmenn, m.a. með því að leita leiða til að sinna fólki sem vill búa í eigin íbúð en hefur þörf fyrir visst öryggi og nánd við þjónustu. Vinnuheitið fyrir þessa umræðu er orðið “HEIMILISVERND”og húsin nefnum við STÓRHEIMILI. Þessi vinna hefur verið unnin í nánu samstarfi við sveitarfélög. Búmenn eiga eitt slíkt heimili í Sveitarfélaginu Vogum, við Akurgerði 25.

  • Búseturéttarformið er vel þekkt kerfi í Svíþjóð og Noregi þar sem um 40% alls íbúðarhúsnæðis er í slíku kerfi.

  • Bæði einstaklingar og félög geta eignast búseturétt hjá Búmönnum. Þess má geta að nokkur bæjarfélög eiga búseturétt hjá Búmönnum sem sveitarfélögin ráðstafa oftast í gegnum sína félagsþjónustu.

  • Þess má geta að skattyfirvöld líta svo á að þeir sem eiga búseturéttaríbúð teljist nær þeim sem eiga sínar íbúðir sjálfir þar sem búseturétthafar njóta vaxtabóta í stað húsaleigubóta. Búmenn upplýsa RSK um afborganir og vexti lána og eru þær upplýsingar forskráðar á framtöl búseturétthafanna.

  • Sveitarfélög hafa einnig látið afslátt á fasteignagjöldum renna til þeirra sem njóta elli- eða örorkubóta.

  • Margir telja að þar sem hópur 50 ára og eldri eru saman þar skapist rólegra yfirbragð.

  • Búmenn hafa lagt áherslu á við val á staðsetningu fyrir íbúðir sínar að vera í nánd við hentugt skipulag og nálægð við þjónustu.

  • Búmenn eru landsfélag sem á íbúðir í þrettán sveitarfélögum þar sem félagsmenn geta fest sér íbúðir og geta þannig einnig flutt sig á milli bæjarfélaga innan kerfis.

  • Lögð er áhersla á vandaðar íbúðir á sanngjörnu verði. Félagið nær verðlagi íbúða niður vegna magnkaupa.

  • Íbúðirnar eru af hentugum stærðum og er lögð áhersla á minni lóðir og oft lagt upp úr því að koma upp samkomuaðstöðu fyrir viðkomandi svæði.

  • Af þeim 540 íbúðum sem félagið á í dag er rúmlega helmingur þeirra í sérbýli. Þriggja herbergja íbúðir um 95 fm ásamt bílskúr eru hvað vinsælastar hjá Búmönnum. Í sérbýlisíbúðum eru par- og raðhús hvað vinsælust.

  • Ætíð hefur verið lögð áhersla á að félagið fái að koma að fyrstu hönnun íbúða til að tryggja að íbúðirnar séu með öll aðgengismál í lagi. Reynt er að tryggja að íbúar geti búið í íbúðunum þrátt fyrir að þeir þurfi að nota hjálpartæki til þess að komast um og geti þannig búið í íbúðunum eins lengi og kostur er þrátt fyrir háan aldur eða fötlun.

  • Félagið heldur utan um rekstur íbúðanna. Félagið sendir íbúunum mánaðarlega greiðsluseðil vegna þeirra gjalda sem falla mánaðarlega á íbúðirnar. Allt er innifalið í þessu mánaðargjaldi nema rafmagnsnotkun íbúðarinnar sjálfrar skv. mæli og e.t.v. hiti ef um er að ræða sérbýli.

  • Eftirfarandi gjöld eru innifalin:

    • afb. lána

    • fasteignagjöld

    • tryggingar

    • viðhaldssjóður

    • hússjóður/rekstarsjóður

    • þjónustugjald  

Búmenn a Housing Cooperative Society for people of 50 years and older

Bumenn was founded in 1998. Today, Bumenn have approximately 2000 members. The Cooperative has built to-day 540 apartments in 13 different municipalities in Iceland. 50% are semi attached houses and or townhouses, and 50% are condominiums. The most popular apartments/houses are 2 bed-room apartments of about 95 m2 plus a garage. We try to keep our operative system simple and fair. Members obtain a number when they enter the society which is not possible to sell, inherit or to trade. The owner of the lowest number has the first choice. Lowest number decides who, in case of many, will obtain the right to buy a so-called “dwelling-right”. Any member of the co-operative can obtain information of the name of the owner of any number. Members pay for the dwelling right up front from 10-15% of the cost price. At the beginning of every month, members receive statement for the rent, including the monthly installment of the mortgage but also expenses necessary to run the apartment/house and maintenance. People at the age of 50 or more have the right to become a member of Búmenn. The price for living at a Búmenn apartment/house ranges from approximately Euro 500 to up to Euro 1000 a month, depending on size. It is important and our main goal, that apartments/houses suits people older than 50, and that people have the possibility to stay in their apartments into an advanced age. For example the layout is arranged that way that there is a total wheel-chair access inside and outside to every apartment/house etc. When a member wants to sell his right, he will be paid back the amount he paid plus inflation, which means that we use inflation index for this calculation. In January 2007 we introduced a market price system for the dwelling-rights that we think is a fairer system. The Norwegian have similar system. Recently we have been developing a new product which we call Great Homes. These are homes consisting of a centre area for different services and units (apartments) for rent connected to this area with guaranteed easy access. Each centre is usually rented to the local community. They offer a certain amount of services not only to people living there, but also to older people living in the respective towns such as, day time activities meals etc. Today we are working on 4 projects of this kind in four different communities The Bumenn Cooperative balance sheet is to-day approximately 75 million Euros.